Gluggað í heim örveranna

Texti: Steingerður Steinarsdóttir Í Borgarbókasafninu í Grófinni opnar Alda Ægisdóttir gestum og gangandi glugga inn í heim örveranna. Hún er reykvísk listakona og sýninguna Útópíu setur hún saman úr fjölbreyttum efnivið. Þetta er innsetning sem samanstendur af skúlptúrum sem allir eiga það sameiginlegt að vera innblásnir af frumum og örverum. Þessi huldi heimur hins smágerða sem maðurinn hefur annars ekki aðgang að nema gegnum smásjár er hér stækkaður og dreginn upp í fögrum litum og skemmtilegum formum. Sýningunni lýkur sunnudaginn 23. október og því um að gera að drífa sig til að skoða.
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn