Safa Jemai gerði þessa skemmtilegu köku eftir uppskrift sem hún fékk frá mömmu sinni sem býr í Túnis. Í kökuna notaði hún sólþurrkaðan sítrónubörk frá Mabrúka en Safa er eigandi fyrirtækisins. Kryddin frá Mabrúka eru handgerð í Túnis en það er einmitt móðir Söfu sem sér um alla framleiðslu og notast við hráefni í hæsta gæðaflokki.
![](https://www.birtingur.is/wp-content/uploads/2022/10/Frame-1-1.jpg)