Gönguleiðir sumarsins
Texti: Ragna Gestsdóttir Nú er rétti tíminn til að fara að skipuleggja göngur vors og sumars og á námskeiði í EHÍ mun Jónas Guðmundsson, gönguleiðsögumaður og ferðamálafræðingur, kynna nokkrar þekktar og óþekktar gönguleiðir á hálendinu fyrir þátttakendum, flestar á hinu fallega og vinsæla svæði að Fjallabaki í nágrenni Landmannalauga. Farið verður yfir náttúru, sögu, jarðfræði og fleira. Jónas gaf í fyrra út bókina Gönguleiðir á hálendinu og byggir námskeiðið að hluta á bókinni. Fjöldi mynda færa þig á staðinn þótt í kennslustofunni sért og eins og með allar gönguferðir er áherslan lögð á að njóta, fræðast og hafa gaman. Upplýsingar:
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn