Uppskriftir haustsins eru innblásnar af heitum réttum og íslensku grænmeti ásamt íslenska bygginu frá Vallanesi. Árstíðaskipti eru fersk byrjun á nýjum kafla og tækifæri til að huga að líkama og sál með nærandi fæðu. Heit grænmetissúpa, íslenskt byggsalat, bakað grænkálssnakk, lífrænt tófú í kókoskarrí og ofnbakað grænmeti eru fullkomnar og fljótlegar uppskriftir þegar byrjar að kólna.
![](https://www.birtingur.is/wp-content/uploads/2023/09/GG-Arna-matarthattur-GB-0251-1000x650.jpg)