Gulrætur
Þessi vel þekkta rót er fastagestur á matarborðum margra. Þó við þekkjum appelsínugula afbrigði gulróta best eru þær líka til hvítar, fjólubláar, rauðar og gular. Talið er að ræktun gulróta hafi hafist í Afganistan, Írak og Íran fyrir um það bil þúsund árum síðan en fyrir það voru villtar gulrætur nýttar sem krydd og til lækninga. Fjólubláar gulrætur eru enn ræktaðar mikið í Afganistan og brugga þeir einnig sterkt áfengi úr þeim. Gulrætur eru allra meina bót en í þeim eru mörg mikilvæg næringarefni sem eru góð fyrir augu, húð, tennur og meltingarveginn. Í gulrótum er mikið af svokölluðu beta-keróteni
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn