Marglita slæður og klútar eru mikið í tísku núna, enda mikið hægt að lífga upp á sjálfan sig með einum slíkum. Halla Tómasdóttir, sem verður sjöundi forseti Íslands, kom slæðunum og klútunum heldur betur aftur á kortið eins og við sáum svo eftirminnilega í forsetakosningunum 2024. Og slæðurnar og klútana má nota á margvíslega vegu eins og myndirnar hér að neðan sýna. Þá erum við að sjá slæður notaðar sem hálsskraut, hnýtta í slaufu eða sem hálstau. Eins og við sjáum svo oft þá fer tískan í hringi en Vikan fjallaði einmitt um klúta og hvernig væri best að brjóta þá saman árið 1989.