Hjón með sterka hönnunarsýn sameina krafta sína

Á dögunum litum við í heimsókn í skemmtilega hrátt en hlýlegt húsnæði við Reykjavíkurhöfn þar sem hönnunarstofan Studio Homestead er með aðsetur. Fyrirtækið var opnað hér á landi í maí á síðasta ári en það var stofnað af hjónunum Hildi Árnadóttur innanhússhönnuði og Ágústi Gunnlaugssyni lýsingarhönnuði. Fyrirtækið býður upp á þverfaglega hönnunarþjónustu; innanhússráðgjöf og lýsingarhönnun auk þess sem þau eru með breitt úrval af húsgögnum, ljósum og smáhlutum frá hágæða vörumerkjum. Stofan hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum frá stofnun bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki en hún var upphaflega sett á fót árið 2017. Áherslurnar hafa breyst með tíð og tíma og er stefnan að vinna náið með innanhússhönnuðum og -arkitektum hér á landi. Umhverfismál eru þeim ofarlega í huga og leggja þau upp með að vinna með aðilum sem leita sjálfbærra lausna. Hildur leggur einnig áherslu á að heimilið eigi að vera afslappað og án óþarfa áreitis. Við fengum að mynda sýningaríbúð við Austurhöfn sem Hildur stíliseraði með húsgögnum frá Studio Homestead sem endurspeglar vel stíl hennar og færni.

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.