Hönnunarstúdíóið R57 - íslensk hönnun með fallegan boðskap
Skúli B. Geirdal, grafískur hönnuður, og Karlotta Halldórsdóttir hagfræðingur mynda saman hönnunarstúdíóið R57 sem stofnað var fyrir skömmu. Þau segja fyrirtækið leggja áherslu á hönnun sem bæti umhverfið sem við lifum í. Nú hafa þau gefið út veggspjöld undir yfirskriftinni „Ástin er blind“ til styrktar Blindrafélagi Íslands. Í fréttatilkynningu kemur fram að verkefninu sé ætlað að stuðla að vitundarvakningu á málefnum blindra og sjónskertra og eiga veggspjöldin að minna okkur á að það njóta ekki allir þeirra forréttinda að sjá. Þau eru fáanleg í fimm litum þar sem punktaletur leikur stórt hlutverk. Skúli og Karlotta nefna jafnframt í tilkynningunni að
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn