Húðkastið - Hlaðvarp um húðina
Texti: Anna Lára Árnadóttir Hlaðvarpsþættirnir Húðkastið eru gefnir út af Húðlæknastöðinni en það eru þær Ragna Hlín, Jenna Huld og Arna Björk sem fræða hlustendur um ýmis húðvandamál og gefa þeim góð ráð. Þær stöllur eru húðlæknar hjá Húðlæknastöðinni og hafa brennandi áhuga á öllu sem viðkemur húðinni. Í hlaðvarpið hafa einnig komið góðir gestir, eins og lýtalæknirinn Hannes Sigurjónsson og áhrifavaldurinn Helgi Ómars sem tók fyrir húðumhirðu karla. Auk þess fjalla þær um ýmis málefni tengd húðinni, eins og bótox, húðkrabbamein og öldrun húðarinnar. Hægt er að hlusta á þættina á Spotify og Apple Podcasts eða á vefsíðu Húðlæknastöðvarinnar.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn