Sumarið 2021 lögðum við leið okkar í Hvalfjörðinn. Um korteri eftir að hafa beygt inn Hvalfjarðarveg blöstu við okkur á vinstri hönd svörtu húsin í Hvammsvík sem við ætluðum að skoða. Þar tók Gríma Björg Thorarensen á móti okkur og sýndi okkur þetta sögulega svæði sem hún og maðurinn hennar, Skúli Mogensen, hafa varið miklum tíma í að byggja upp. Þau hafa lagt áherslu á að öll uppbygging sé gerð í sátt og samlyndi við náttúruna og með tilliti til sögu svæðisins, útkoman er afar vel heppnuð.“
![](https://www.birtingur.is/wp-content/uploads/2022/05/HH-2108-42-hk_038546-1000x650.jpg)