Innblástur sóttur til Japan
Þessi fallegi gólflampi er nýjasta viðbótin í vörulínu danska hönnunarfyrirtækisins VIPP. Lampinn sjálfur er úr málmi og dökkri eik en skermurinn er handgerður úr fínlegum pappír og innblásturinn er sóttur í japönsk pappírsljósker. Hér mætast því japanskir og skandinavískir hönnunarstraumar á flottan hátt. Lampinn gefur frá sér milda og hlýja birtu og áferðin í pappírnum skapar fallegt samspil ljóss og skugga. Skermurinn stendur á þrífæti og er rafmagnssnúran falin inni í einum fætinum sem gerir hönnunina stílhreina og smart. Með því að nota pappír í þennan lampa hefur VIPP bætt meiri léttleika og mýkt inn í vöruúrval sitt sem hefur
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn