Janúardóttir
Texti: Ragna Gestsdóttir Erna Hrund Hermannsdóttir, förðunarfræðingur og vörumerkjastjóri hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar, og Jón Kristófer Sturluson eignuðust dóttur 12. janúar. Dóttirin er fyrsta barn þeirra saman, en Erna á tvo syni frá fyrra sambandi. „Hjartað stækkaði um nokkur númer þegar þessi draumur kom í heiminn. Rúmar 16 merkur og 51 cm – Jónsdóttir er algjör gullmoli og sefur, drekkur og krúttar þess á milli yfir sig. Lífið er algjörlega dásamlegt þessa dagana,“ skrifaði Erna á samfélagsmiðla og deildi myndum af dótturinni. Síðustu óléttumyndirnar birti Erna á gamlársdag, glæsileg í grænum kjól.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn