Þessar kjúklingabaunabökur minna helst á eggjabökur en þær eru ótrúlega mjúkar, mildar á bragðið og stútfullar af grænmeti. Kjúklingabaunahveiti er snilldarhráefni sem er einfaldlega gert úr möluðum kjúklingabaunum og er því náttúrulega glútenlaust og mjög trefja- og próteinríkt. Þessar bökur eru fullkomnar fyrir morgun- og hádegismat á tjaldsvæðinu, bæði heitar og kaldar.
![](https://www.birtingur.is/wp-content/uploads/2023/05/Gg-taka-med-Ornu-GB-0089-2-1000x650.jpg)