Lærðu ljósmyndun
Texti: Ragna Gestsdóttir Langar þig að læra ljósmyndun? Finna má mikið magn af kennsluefni á netinu. Á fjarnamskeid.is býður Pálmi Guðmundsson upp á að kaupa ársáskrift að kennsluefni í fjarnámi, námið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Kennd eru undirstöðuatriði í ljósmyndatækninni, sýndar alls kyns myndatökur og sýnd mörg dæmi. Nýju námsefni er bætt inn í hverjum mánuði. Upplýsingar: fjarnamskeid.is. Hjá Frama kennir Baldur Kristjánsson ljósmyndari ljósmyndun með 14 veffyrirlestrum. Baldur fer yfir portrettmyndatökur, lýsingu, sköpunarferli, tæknileg atriði og búnað. Upplýsingar: frami.is.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn