Landsmót hestamanna
30. júní 2022
Eftir Ritstjórn Vikunnar

Texti: Ragna Gestsdóttir Landsmót hestamanna 2022 verður haldið á Rangárbökkum við Hellu 3.-10. júlí 2022 þar sem Rangárbakkar munu duna af hófaslætti. Landsmótið er það tuttugusta og fjórða í röðinni og einn stærsti íþróttaviðburður og fjölskylduhátíð sem fram fer á Íslandi. Bestu knapar og hestar landsins etja kappi auk þess sem boðið verður upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir allan aldur. Formlegri dagskrá Landsmóts hestamanna lýkur á laugardagskvöldinu 9. júlí en á sunnudeginum 10. júlí munu hrossaræktarbú á svæðinu bjóða heim. Upplýsingar: landsmot.is.
🔒
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn