Litríkir og bragðgóðir smáréttir – Matarboð hjá Möggu Ósk
Umsjón/ Agnes SólmundsdóttirMyndir/ Sunna Gautadóttir Á fallegum en gráum rigningardegi í ágúst bauð sælkerinn Margrét Ósk Gunnarsdóttir í yndislegt matarboð í huggulegri kjallaraíbúð við Hljómskálagarðinn. Margrét Ósk, sem gjarnan er kölluð Magga, hefur alltaf haft brennandi áhuga á matargerð og lýsir henni sem sínu helsta listformi, þar sem sköpunarkrafturinn fær útrás. „Í mér býr lítill kokkur sem hefur alltaf frekjast um að fá að taka pláss.“ Þegar kokkurinn er í pásu vinnur hún sem mannauðssérfræðingur hjá Icelandia ferðaskrifstofu og sinnir einnig umboðsmennsku fyrir tónlistarfólkið í Supersport! og Knackered. Hún nýtir þó hvert tækifæri til að sinna sínu helsta áhugamáli, matargerð.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn