Arna Þorleifsdóttir innanhússhönnuður og Svala Jónsdóttir innanhússarkitekt gáfu okkur góð ráð og spáðu fyrir um trend og strauma í veggefnum og litavali um þessar mundir. Þær sjá mun meira um áferðir á veggjum í stað hefðbundinnar málningar. Náttúruleg efni halda áfram að vera eftirsótt og eins er með hlýja litatóna. Blanda af stórum og smáum flísum í kremuðum tónum mun njóta aukinna vinsælda á árinu og litrík heimili munu sækja í sig veðrið.
![](https://www.birtingur.is/wp-content/uploads/2023/03/Forsidumynd-6-1000x650.jpg)