Munurinn á mozzarella og burrata
Ostgæðingar vita að bæði mozzarella og burrata eru hvítir og mjúkir, ítalskir ostar en hver er munurinn á þessum tveimur kúlulaga ostum? Mozzarella-ostur er annaðhvort gerður úr kúamjólk eða mjólk úr vatnabuffli og hefur teygjanlega en stífa áferð. Mozzarella var fyrst búinn til á Ítalíu á 13. öld á meðan burrata-osturinn varð ekki til fyrr en um 1956. Sagan segir að mjólkurskortur hafi verið yfirvofandi í Puglia-héraði og því hafi ostagerðarmaðurinn Lorenzo Bianchino brugðið á það ráð að teygja mozzarella-ostinn og búa til nokkurs konar poka sem hann fyllti með stracciatella-rjóma. Burrata-osturinn hefur því mun mýkri og rjómkenndari áferð. Báðir
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn