Nýtt frá Önnu Þórunni
UMSJÓN/ Ritstjórn MYNDIR/ Frá framleiðendum Roma-skálin er nýjasta viðbótin við vörulínu Önnu Þórunnar sem hannar undir merkinu ANNA THORUNN. Skálina frumsýndi hún á HönnunarMars í maí. Um fallega keramikskál er að ræða, fullkomin undir ávexti eða salat. Skálin er óður til höfuðborgar Ítalíu, Rómar, en þar hóf Anna feril sinn sem hönnuður og hafðiborgin mikil og mótandi áhrif á hana. Á HönnunarMars sýndi Anna einnig salatáhöld sem unnin eru úr nautgripahornum.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn