Pikklaður rauðlaukur
Það eru margar leiðir til að pikkla eða súrsa rauðlauk en með þessari sáraeinföldu aðferð og einungis þremur innihaldsefnum er hægt að töfra fram litríkan og gómsætan bragðbæti á örstuttum tíma. Allt sem þarf er glerkrukka, rauðlaukur, gróft salt og sítróna eða tilbúinn sítrónusafi. Byrjið á því að skera laukinn í þunnar sneiðar og setja í hreina krukku. Stráið svo ríflegri teskeið af grófu salti yfir laukinn og bætið sítrónusafa úr einni stórri sítrónu yfir. Ef notaður er tilbúinn sítrónusafi er gott að miða við rúmlega tvær teskeiðar af safa. Ef skornir eru fleiri en einn laukur er salti og
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn