Samspil húmors og einfaldleika – heimili Röggu Holm í Reykjavíkurdætrum

Í snoturri íbúð í Hafnarfirði búa þær Ragnhildur Holm og Elma Valgerður ásamt kisunni París. Húsið var byggt árið 1963 og er skipulagið klassískt fyrir þann tíma. Íbúðin er 109 fermetrar að stærð og þær fluttu inn árið 2019. Á þeim tíma hafa þær jafnt og þétt verið að koma sér fyrir og eru ófeimnar við að breyta og bæta á heimilinu. Ragga, eins og hún er kölluð, er með mörg járn í eldinum, hún hefur verið kennd við Reykjavíkurdætur og einnig gefið út tónlist undir eigin nafni. Andrúmsloftið er í takt við heimilisfólkið; afslappað þar sem einfaldleiki, húmor og vottur af smávegis rómantík ræður ríkjum. 

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.