Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors
Vikan

Skemmtileg bók skrifuð af hlýju og næmni

Skemmtileg bók skrifuð af hlýju og næmni

Texti: Steingerður Steinarsdóttir Guð leitar að Salóme eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur er yndislega falleg saga um ást, tengsl, tengslaleysi, þá tilfinningu að vera öðruvísi og leit manneskjunnar að sjálfri sér. Sumir verða fyrir áföllum og er hent út af sporinu, annaðhvort varanlega eða tímabundið meðan aðrir finna sig einhvern veginn alltaf á skjön við lífið og tilveruna. Þannig er Salóme, tilfinninganæm, athugul, listræn og feimin. Rauðhærða stúlkan sem burðast með drauga fortíðar. Þetta er fjölskyldusaga. Elsa býr á Akranesi með Pétri sínum, fjörugum sjómanni með gullhjarta þótt hann sé kannski svolítið drykkfelldur. Þau eiga saman rauðhærðu tvíburana Láru og Stellu.

Áskrift að Birtíngi

Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.

Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.

Gerast áskrifandi

Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn