Skemmtilegt samstarf með servíettur
Það er góð tilfinning að geta keypt eitthvað fallegt þar sem ágóðinn rennur til góðra málefna. Þessar fallegu servíettur eru einmitt gott dæmi um slíkt en það er Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra sem fá ágóðann. Dúnmjúkar servíetturnar eiga að minna okkur á að lifa lífinu í núinu. Servíetturnar eru hannaðar og prentaðar í samstarfi við Reykjavík Letterpress en þær eru tilvaldar í kaffiboð, veislur og afmæli og á alla aðra viðburði þar sem fólk kemur saman til að lifa og njóta því að eins letrið á þeim segir „Lífið er núna.“
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn