Skúlptúrískir sófar og stólar ítalska hönnuðarins Joe Colombo

Umsjón: Guðný Hrönn / Myndir: Frá framleiðendum Eitt af því sem setur óneitanlega sterkan svip á stofuna eru þeir sófar og hæginda stólar sem prýða það rými enda getur sófi gjörbreytt ásýnd þess. Ítalski hönnuðurinn Joe Colombo (1930-1971) var snillingur í hönnun á sófum og hægindastólum og voru verk hans hálfgerðir skúlptúrar ásamt því að þjóna praktískum tilgangi. Joe Colombo stundaði nám í myndlist og síðar arkitektúr í Mílanó á Ítalíu og starfaði sem myndlistarmaður áður en hann helgaði sig húsgagna- og vöruhönnun seint á sjötta áratugnum. Hann stofnaði svo eigið hönnunarstúdíó árið 1962 og einblíndi að mestu á gerð húsgagna, ljósa og lampa. Hann stóð framarlega hvað varðar notkun plasts í húsgagnahönnun og þótti oft koma með...
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn