Sumarbústaðurinn er griðastaður frá erli hversdagsins í borginni og þar viljum við láta okkur líða vel. Margir vilja líka kannski ekki hafa allt eins og heima við, heldur einfalda hlutina. Það er hægt að gera með ýmsum hætti, kaupa notað og nýta fyrir þá sem eru á umhverfisvænum nótum eða notast við umhverfisvænar vörur sem eru beint úr búðinni. Sumt eykur vellíðan og skapar stemningu í bústaðnum og svo eru það hlutir sem gaman er að hafa og njóta. Við kíktum í búðir.