Speglar eru prýði inni á heimilum, stækka rými, gefa skemmtilegan svip og eru ganglegir. Þeir eru margvíslegir að lögun og gerð, allt eftir því hvaða hlutverki þeir gegna. Geta nýst á baðherbergjum og forstofum, í svefnherbergjum og svo eru það speglarnir sem hafa frekar þann tilgang að stækka rými eða nýtast líkt og málverk, til að prýða. Í flestum tilvikum sameina þeir hvorutveggja, notagildi og að fegra.