Strawberry Daiquiri
Umsjón: Ragna Gestsdóttir Daiquiri-drykkurinn er nefndur eftir samnefndum bæ á Kúbu en sagan segir að Jennings Cox bandarískur verkfræðingur hafi fundið drykkinn upp þar árið 1896. Ginið kláraðist í boði sem Cox hélt og því var romm hendi næst, drykkurinn sló í gegn hjá gestunum og nefndi Cox hann eftir næsta bæ. Margar útfærslur eru til af drykknum og Jarðarberja-Daiquiri er svalandi sumardrykkur, sem má útbúa bæði með og án áfengis. Best er að nota fersk jarðarber í hann og hafa hluta þeirra frosin. Þannig verður kokteillinn þéttur líkt og „smoothie“ og nánast þannig að borða má hann með skeið.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn