Súrkálsveisla fyrir þarmaflóruna

Texti: Ragna Gestsdóttir Birna G. Ásbjörnsdóttir, einn helsti sérfræðingur landsins í þarmaflórunni, og súrkálsdrottningin Dagný Hermannsdóttir leiða saman þekkingu sína á námskeiði í Endurmenntun. Birna leiðir þátttakendur í allan sannleikann um þarmaflóruna, mikilvægi hennar og kosti þess að borða holla fæðu. Boðið verður upp á súrkálsveislu auk brauðmetis og annars meðlætis. Dagný verður með erindi um súrkálsgerð og kennir þátttakendum að útbúa þrjár ólíkar gerðir af súrkáli og öðru gerjuðu grænmeti. Í lokin verður happdrætti um súrkálskrukkurnar sem búnar verða til á námskeiðinu. Upplýsingar: ehi.is.
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn