Gott er að setja þetta salat í krukkur og taka með í lautarferðina eða útileguna. Setjið það til dæmis í krukkur með loki og skiptið salatinu í nokkur lög, hafið ferska salatið efst svo það haldist brakandi ferskt. Hér er notað búlgur en ef það fæst ekki má vel nota annað korn eins og perlubygg.
![](https://www.birtingur.is/wp-content/uploads/2022/06/Frame-2-41.jpg)