Taccia lampinn – 60 ára klassík frá Flos
Taccia-lampinn frá Flos er sannkölluð klassík en hann var hannaður árið 1962. Það voru ítölsku bræðurnir Achille og Pier Giacomo Castiglioni sem hönnuðu lampann sem er í dag einn af þekktari lömpum hönnunarsögunnar. Lampinn gefur frá sér mjúka birtu sem dreifist fallega. Hann samanstendur af fæti úr áli, munnblásnum glerkúpli og hvítum álfleti sem endurkastar birtunni skemmtilega. Castiglioni-bræðurnir voru óhræddir við að gera tilraunir í hönnun sinni og er Taccia-lampinn gott dæmi um það en þessi tiltekni lampi minnir eilítið á ljósakrónu á hvolfi. Lampinn hefur verið endurbættur mikið frá því að hann leit fyrst dagsins ljós og er í
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn