Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Efnahagsmál

Kúla Völvunnar reyndist kristaltær

Umsjón: Ritstjórn Vikunnar  Völva Vikunnar reyndist ótrúlega sannspá um menn og málefni ársins sem nú er á enda. Eurovision, jarðeldar og Sjálfstæðisflokkurinn eru á meðal þeirra málefna sem hún virtist sjá vel inn í framtíðina.   Trúmálin  Það fyrsta sem Völva síðasta árs nefndi var að þjóðin myndi halla sér aftur að þjóðkirkjunni. Bjart væri yfir biskupi Íslands og einhver óútskýrð öfl væru að styrkja trú Íslendinga. Það reyndist rétt, en greint var frá stóraukinni kirkjusókn ungra manna á árinu. Útvarpsþátturinn Lestin á Rás 1 ræddi við unga karlmenn sem skipuleggja hópferðir í messur þjóðkirkjunnar og fylgjast með kristnum áhrifavöldum.   Á árinu hefur biskup Íslands, frú Guðrún Karls Helgudóttir, vakið mikla athygli, farið í opinberar heimsóknir til Úkraínu og talað opinberlega gegn hatursorðræðu sem birt var í Ríkisútvarpinu.   Forseti Íslands ...