Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Fólk

Völvan 2026: Þjóðin svartsýnni en tilefni er til

Umsjón: Ritstjórn Vikunnar  Það var ískalt og svartamyrkur nóvembermorguninn þegar blaðamaður Vikunnar hélt af stað fótgangandi til fundar við Völvuna. Leiðin lá að reisulegu húsi í Gamla Vesturbænum þar sem Völvan hafði spáð svo listilega rétt fyrir um menn og málefni sléttu ári áður. Þegar blaðamaður hringdi dyrabjöllu kjallaraíbúðarinnar kom þreytuleg unglingsstúlka til dyra, ranghvolfdi augunum og bað hann að fylgja sér út í myrkrið. Leiðin tók óvænta stefnu niður að Reykjavíkurhöfn og inn um dyr ómerktrar verbúðar. Þar tekur þá Völva Vikunnar á móti blaðamanni að þessu sinni. Hún er með mittissítt grátt hár og langar svartlakkaðar neglur, gömul og ung í senn. Tignarleg kona með dularfullt fas. Það er þykkur reykelsisilmur í loftinu og eina birta rýmisins stafar frá logandi kertastubbum sem er dreift hist og her. Þetta er greinilega vinnustofa listmálara. Völvan situr klofvega á kolli umkringd málningartrönum, strigum, tómum túpum og hálfkláruðum málverkum. Á trönum í miðju verbúðarinnar stendur flennistórt portrett af Kristrúnu Frostadóttur.   „Eins og þú sérð situr forsætisráðherra á forystufé,“ segir Völvan þegar blaðamann ber að garði. Blaðamanni hafði verið starsýnt á andlit Kristrúnar og hafði hvorki tekið eftir ærinni sem hún situr í söðli á, né getað greint á milli forystusauðs og venjulegrar rollu þó líf hans lægi við.   „Þetta forystufé táknar Kristrúnu. Hún er þrjósk og ákveðin kona sem veit hvað hún vill. Því hafa samstarfsfélagar hennar kynnst eftir þetta tæpa ár hennar í forsætisráðuneytinu. Þau sem kunna best á Kristrúnu vita að trikkið er að láta hana halda að hún sé að fá hugmyndirnar sjálf,“ segir Völvan og býður blaðamanni sæti í sinnepsgulan flauelsófa sem hann sekkur í. „Þar með er ég ekki að segja að hún fái ekki hugmyndirnar sjálf. Hún er hugmyndarík og lausnamiðuð kona. En í hennar heimi er ekki sama hvaðan gott kemur.“ ...

Kúla Völvunnar reyndist kristaltær

Umsjón: Ritstjórn Vikunnar  Völva Vikunnar reyndist ótrúlega sannspá um menn og málefni ársins sem nú er á enda. Eurovision, jarðeldar og Sjálfstæðisflokkurinn eru á meðal þeirra málefna sem hún virtist sjá vel inn í framtíðina.   Trúmálin  Það fyrsta sem Völva síðasta árs nefndi var að þjóðin myndi halla sér aftur að þjóðkirkjunni. Bjart væri yfir biskupi Íslands og einhver óútskýrð öfl væru að styrkja trú Íslendinga. Það reyndist rétt, en greint var frá stóraukinni kirkjusókn ungra manna á árinu. Útvarpsþátturinn Lestin á Rás 1 ræddi við unga karlmenn sem skipuleggja hópferðir í messur þjóðkirkjunnar og fylgjast með kristnum áhrifavöldum.   Á árinu hefur biskup Íslands, frú Guðrún Karls Helgudóttir, vakið mikla athygli, farið í opinberar heimsóknir til Úkraínu og talað opinberlega gegn hatursorðræðu sem birt var í Ríkisútvarpinu.   Forseti Íslands ...

Snossgæti á jólaborði Sögu og Snorra

Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Eva Schram  Jól leikkonunnar Sögu Garðarsdóttur og tónlistarmannsins Snorra Helgasonar einkennast...

Byrjar seint í ágúst að rugla í börnunum sínum og æsa upp í algjöra jólasturlun

Halldór Eldjárn er Vesturbæingur í húð og hár og segist vera hamingjusamlega giftur bestu...

Lesandi vikunnar

Umsjón: Ragnheiður Linnet  Mynd: Aðsend  Lesandi vikunnar að þessu sinni er Arna Emilía Vigfúsdóttir forstöðumaður Íþöku, bókasafns Menntaskólans í Reykjavík. ...

Tjáðu sig aldrei um ungmennadómstólinn eða vistheimilin

Texti: Ragnheiður Linnet  Mynd: Aðsend  Fröken Dúlla er heiti á bók sem kom út fyrir nokkru...

Borgin mín – Einar Örn í Haag

Umsjón: Steinunn Jónsdóttir Myndir: Aðsendar  Einar Örn Magnússon er ungur tónlistarmaður með rödd og sviðssjarma...

Léttur og bragðgóður lokahnykkur

Umsjón/ Telma Geirsdóttir  Myndir/ Eva Schram Bakarinn Karen Eva Harðardóttir hefur bæði bakað og...

Litríkur matur lykilatriðið

Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Eva Schram  Á huggulegu vetrarkvöldi tók Ragnheiður Björk Halldórsdóttir á móti...

Matcha-jól hjá yuyu

Umsjón/ Telma Geirsdóttir  Myndir/ Sunna Gautadóttir   Vinirnir Guðrún Helga Halldórsdóttir, Shusuke Nakamura og Kaede...