Hönnun
Högnuhús í allri sinni dýrð
Umsjón/ Matthildur Hafliðadóttir Myndir/ Sunna Gautadóttir Við Hrauntungu í Kópavogi búa hjónin Gísli Viðar Eggertsson og Kristín...
Tengingar á HönnunarMars 2026
Umsjón/ Þórey ÞórsdóttirMyndir/ Aldís Pálsdóttir, Margrét Unnur, HönnunarMars HönnunarMars er hönnunarhátíð á Íslandi þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti. HönnunarMars boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2009 og er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið. Þema HönnunarMars 2026 er tengingar Í heimi sem bæði er ofurtengdur og aftengdur er spennandi að beina sjónum að þessari knýjandi þörf manneskjunnar fyrir tengsl, að þráðunum sem tengja allt saman og töfrunum sem liggja í tengingunum sjálfum. Tengingar eru grunnurinn að öllu og lífæðar samfélaga. Borgin er ekkert án tenginga, byggingin lifnar við í tengingum sem fólk hefur við hana, flíkin er ekkert án þess sem klæðist henni. Ekkert snertir við okkur nema við tengjum við það. TÖFRARNIR LIGGJA...
Louis Poulsen – Brautryðjandi í nútímalýsingu
Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Frá framleiðanda Louis Poulsen er nafn sem allir hönnunarunnendur þekkja enda er það eitt...
Danskur herragarður í Kópavogi
Umsjón/ Þórey ÞórsdóttirMyndir/ Eva Schram Í glæsilegu múrsteinshúsi í Melahvarfi í Kópavogi býr Sólveig Andersen, iðn-...
Heimili með hjarta í Suðurnesjabæ
Umsjón/ Þórey Þórsdóttir Myndir/ Sunna Gautadóttir Í bjartri og hlýlegri íbúð í glænýju hverfi í Suðurnesjabæ...
Mjúk og sterk list
Umsjón/ Gunnhildur Björg BaldursdóttirMyndir/ Eva Schram Nafn: Sara Matthíasdóttir Menntun: Félagsfræðingur, aðferðafræðingur og framhaldsskólakennari Starfstitill: Listakona Instagram...
Uten.Silo: Hversdagsleiki til sýnis
Umsjón/ Þórey ÞórsdóttirMyndir/ Frá framleiðanda, MoMA Design store Getur listaverk haft notagildi? Hvar liggja mörkin á milli hönnunar og listar? Þýski hönnuðurinn Dorothee Becker kann að hafa velt þessum spurningum fyrir sér þegar hún hannaði vegghirsluna Uten.Silo árið 1969. Vegghirsla Becker hefur fyrir löngu sannað gildi sitt sem bæði eftirsóttur hönnunargripur og fjöldaframleitt listaverk, en sjálft samtímalistasafnið í New York, MoMA, hefur um árabil haft Uten.Silo til sýnis og sölu. Á heimasíðu MoMA er Uten.Silo lýst sem sérkennilegri (e. quirky) vegghirslu úr endurunnu plasti, samansettri úr marglaga vösum, krókum og klemmum. Við þá lýsingu mætti bæta að sem listaverk og hönnunargripur er Uten.Silo þeirrar gerðar að hver eigandi leggur sína eigin fagurfræði að mörkum eftir því hvað hann kýs að setja í vasana og hvað fær að hanga á krókunum. Dorothee Becker fæddist í Aschaffenburg árið 1938. Hún lagði stund á tungumálanám við háskóla í Frankfurt og Munchen áður en hún sneri sér að hönnun, en hún hlaut aldrei formlega menntun í faginu. Árið 1960 flutti hún til Bandaríkjanna ásamt eiginmanni sínum, hönnuðinum Ingo Maurer. Þar fékk hún hugmyndina að frumútgáfu Uten.Silo eftir að hafa kynnt sér kenningar ítalska uppeldisfræðingsins Mariu Montessori. Sú útgáfa var smíðuð úr viði og hugsuð fyrst og fremst sem leikfang sem kenna átti börnum geómetrísk form. Börn Becker sýndu þessu leikfangi hins vegar lítinn sem engan áhuga og varð það til þess að Becker sá sér ekki annað fært en að endurhugsa notagildi leikfangsins frá grunni. Haft er eftir Becker að við þá hugmyndavinnu hafi æskuárin í Þýskalandi orðið henni hugleikin og þá sérstaklega heimsóknir hennar í apótek föður síns. Þar gat hún gleymt sér tímunum saman við að gramsa í sérhannaðri tösku sem þar hékk á vegg og hafði að geyma margvíslega vasa fulla af hinum sérkennilegustu verkfærum og munum. Þessi æskuminning hafi svo orðið kveikjan að þeirri útgáfu vegghirslunnar sem við þekkjum og njótum í dag.
Gott skipulag stuðlar að friðsælu jafnvægi á heimilinu
Innanhússhönnuðurinn Maríanna Björk Ásmundsdóttir er nýflutt heim frá London þar sem hún lauk námi...
Einstakt athvarf í Húsafelli
Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Kevin Pages Innan um stórkostlega náttúrufegurð í Húsafelli er að finna glæsilegt hús sem...
Hámarksflæði í hvaða rými sem er
Feng shui er ævaforn listgrein og vísindi sem þróuð voru fyrir 3000 árum í Kína og náðu vinsældum upp úr 1990 á...