Kamilla Einarsdóttir
Góða bók er hægt að lesa hundrað milljón sinnum án þess að leiðast
Kamilla Einarsdóttir er ein af skemmtilegri manneskjum borgarinnar. Hún er rithöfundur, bókavörður og einlægur aðdáandi Hamraborgar í Kópavogi. Hún hefur getið sér gott orð fyrir skáldsögurnar Kópavogskróniku og Tilfinningar eru fyrir aumingja en sú fyrrnefnda var einnig sett upp sem leikrit í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Silju Hauksdóttur. Kamilla hefur einstakt lag á því að sjá heiminn frá fersku sjónarhorni og draga áhugaverða kima mannlífsins fram í dagsljósið. Umsjón: Tinna Proppé / Myndir: Í einkaeigu Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér núna? „Ég er alltaf með bunka af bókum því ég vil geta valið mér bók eftir því í hvernig skapi ég er án þess að þurfa að standa upp. Sumar bækur eru alltaf hjá mér, eins og Mannfækkun af hallærum eftir Hannes Finnsson, hún reddar mér alltaf þegar ég dett í sjálfsvorkunn. Núna er ég líka með ljóðabók...