Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Klassíkin

Louis Poulsen – Brautryðjandi í nútímalýsingu

  Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Frá framleiðanda  Louis Poulsen er nafn sem allir hönnunarunnendur þekkja enda er það eitt...

Uten.Silo: Hversdagsleiki til sýnis

Umsjón/ Þórey ÞórsdóttirMyndir/ Frá framleiðanda, MoMA Design store Getur listaverk haft notagildi? Hvar liggja mörkin á milli hönnunar og listar? Þýski hönnuðurinn Dorothee Becker kann að hafa velt þessum spurningum fyrir sér þegar hún hannaði vegghirsluna Uten.Silo árið 1969. Vegghirsla Becker hefur fyrir löngu sannað gildi sitt sem bæði eftirsóttur hönnunargripur og fjöldaframleitt listaverk, en sjálft samtímalistasafnið í New York, MoMA, hefur um árabil haft Uten.Silo til sýnis og sölu. Á heimasíðu MoMA er Uten.Silo lýst sem sérkennilegri (e. quirky) vegghirslu úr endurunnu plasti, samansettri úr marglaga vösum, krókum og klemmum. Við þá lýsingu mætti bæta að sem listaverk og hönnunargripur er Uten.Silo þeirrar gerðar að hver eigandi leggur sína eigin fagurfræði að mörkum eftir því hvað hann kýs að setja í vasana og hvað fær að hanga á krókunum. Dorothee Becker fæddist í Aschaffenburg árið 1938. Hún lagði stund á tungumálanám við háskóla í Frankfurt og Munchen áður en hún sneri sér að hönnun, en hún hlaut aldrei formlega menntun í faginu. Árið 1960 flutti hún til Bandaríkjanna ásamt eiginmanni sínum, hönnuðinum Ingo Maurer. Þar fékk hún hugmyndina að frumútgáfu Uten.Silo eftir að hafa kynnt sér kenningar ítalska uppeldisfræðingsins Mariu Montessori. Sú útgáfa var smíðuð úr viði og hugsuð fyrst og fremst sem leikfang sem kenna átti börnum geómetrísk form. Börn Becker sýndu þessu leikfangi hins vegar lítinn sem engan áhuga og varð það til þess að Becker sá sér ekki annað fært en að endurhugsa notagildi leikfangsins frá grunni. Haft er eftir Becker að við þá hugmyndavinnu hafi æskuárin í Þýskalandi orðið henni hugleikin og þá sérstaklega heimsóknir hennar í apótek föður síns. Þar gat hún gleymt sér tímunum saman við að gramsa í sérhannaðri tösku sem þar hékk á vegg og hafði að geyma margvíslega vasa fulla af hinum sérkennilegustu verkfærum og munum. Þessi æskuminning hafi svo orðið kveikjan að þeirri útgáfu vegghirslunnar sem við þekkjum og njótum í dag.

Kannan sem vekur alltaf athygli

Umsjón/ Matthildur Hafliðadóttir Myndir/ Frá framleiðendum  Framleiðendur Glúgg glúgg könnunnar hafa verið nokkrir en saga hennar byrjar í Englandi. Þeir fyrstu voru Thomas Forester & Son sem framleiddu margs konar postulíns-og leirmuni í bænum Staffordshire í Englandi frá árinu1870 og þar á meðal The Gurgling water jugs, könnu sem gaf frá sér hljóðið sem vísar til nafnsins. Þrátt fyrir það tengja flestir uppruna vatnskönnunnar við leirmunaverksmiðjuna Dartmouth Pottery sem fyrst framleiddi vatnskönnuí laginu eins og fiskur og lýsti könnunni sem nýjung sem vekur alltaf athygli.  Glug glug kannan hefur átt sér þó nokkur nöfn. Hérlendis er hún ýmist kölluð Glúgg glúgg kannan, Gluckigluck eða Fiskikannan en nafn könnunnar vísar til útlits hennar og hljóðsins sem kemur þegar vökva er hellt úr henni, sem minnir einmitt á fisk.  Árið 1958 hlaut Bretlandsdrottning slíka fiskikönnu að gjöf frá Dartmouth Pottery sem gerði það að verkum að vinsældir könnunnar á sjötta og...

Byltingarkennd eldhúshönnun

Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Jonathan Savoie, Ulrike Weisser  Þegar við göngum inn í eldhús með...

Fyrsti arkitekt Íslands

Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Af vef Minjastofnunar, með þökkum  Rögnvaldur Ólafsson var sannkallaður brautryðjandi í...

Átthyrnda ítalska undrið

Umsjón/ Snærós Sindradóttir Myndir/ Unsplash og frá framleiðanda  Það má lengi kýta um bestu lausnina...

Blés nýju lífi í gamlar hefðir

Auður Sveinsdóttir, síðar Auður Laxness, fæddist 30. júlí 1918 á Eyrarbakka. Hún giftist Halldóri...

Listakonan Louisa Matthíasdóttir

UMSJÓN/ Jóhanna Vigdís RagnhildardóttirMYNDIR/ Frá heimasíðu Louisu Louisa Matthíasdóttir (1917-2000) var vel kunnugur listmálari...

Laufabrauð um jólin

Umsjón og myndir/ Telma Geirsdóttir og frá framleiðendum Það þekkja sennilega allir landsmenn laufabrauð, enda...

Náttúruleg fegurð og hagnýtni í verkum Alvar Aalto

Umsjón/ Telma Geirsdóttir Myndir/ Eyþór Árnason og frá framleiðendum  Alvar Aalto (1898-1976) er einn merkasti...