Krista Keto
„Ég er ekki lengur hrædd við það sem koma skal“
María Krista Hreiðarsdóttir hefur alla tíð verið sinnar eigin gæfu smiður. Frumkvöðlaandann fékk hún í vöggugjöf og hefur hún nýtt sér hann óspart í gegnum árin. Hún hefur skapað sér nafn sem hönnuður, fyrirtækjaeigandi og áhrifavaldurá sviði heilsu og lífsstíls en er að eigin sögn ósköp venjuleg miðaldra stelpa. Hér rifjar hún upp æskuárin í Hafnarfirði, lífsstílsbreytinguna sem breytti lífi hennar og sáran missi sem kenndi henni að taka lífinu ekki sem sjálfsögðu. Umsjón: Steinunn Jónsdóttir Myndir: Sunna Gautadóttir Förðun: Kalli MUA „Ég fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði þann 31. desember 1973 og var líklega með þeim síðustu sem geta kallað sig fullgildan GAFLARA en það gildir aðeins um þá sem fæðast innan 220 póstnúmersins. Ég er afar stolt af því að vera Hafnfirðingur enda er Hafnarfjörður minn uppáhaldsstaður og ég vil hvergi annars staðar vera,“ segir María Krista þegar hún er spurð út í uppruna sinn. Á æskuheimilinu var alltaf líf og fjör en hún er elst fjögurra systkina. „Við ólumst upp í sama húsinu alla okkar æsku og þar búa foreldrar okkar enn. Ég bjó að vísu eitt ár á Laugarbakka sem barn með mömmu og pabba, sem unnu þar í skólanum, en annars höfum við fjölskyldan lítið farið út fyrir bæjarmörkin.“ Foreldrar hennar,...