Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Lesandi

Trúir ekki á uppáhaldsbækur frekar en uppáhaldsvikudaga

Æsa Guðrún Bjarnadóttir starfar sem ritstjóri hjá Forlaginu og er hafsjór af vitneskju um allt sem viðkemur bókum, íslenskum sem erlendum. Hún hefur unnið með mörgum höfundum þeirra íslensku bóka sem lesendur Vikunnar hafa gleypt í sig síðustu misserin.  Umsjón: Tinna Proppé / Myndir: Í einkaeigu   Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér núna?  „Ég, sem er vanalega mest í skáldsögunum, er með tvær bækur almenns efnis á náttborðinu núna. Annars vegar Untangled eftir Lisu Dahmour sem fjallar um unglingsstúlkur og vandasama leið þeirra til fullorðinsára, með kannski svolítið bandarískri nálgun, en þó er margt áhugavert í henni. Hin bókin er Gáfaða dýrið eftir Sæunni Kjartansdóttur sem er mögnuð bók sem útskýrir eiginlega af hverju við erum eins og við erum og opnar skilningsríka sýn á eigin hegðun og tilfinningar sem eru ekki alltaf í takt við yfirvegaða skynsemi. Ég er sem sé að reyna að átta mig á krampakenndri...