Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Lissabon

Fólk tekur hlutunum ekki of alvarlega

Elísabet Alma Svendsen hefur verið áberandi í listasenunni hér á landi síðastliðin misseri en hún er stofnandi Listvals Gallery sem er sýningar- og söluvettvangur fyrir íslenska myndlist. Fyrir utan það að reka galleríið sjálft á Hólmaslóð sinnirhún einnig myndlistarráðgjöf fyrir heimili og fyrirtæki. Þar sem Elísabet Alma hefur lagt mark sitt á umhverfið er alltaf fagurt um að litast og kemur því ekki á óvart að hún starfi einnig sem innanhússhönnuður. Aðspurð segir hún markmið sitt vera að skapa heildstæðar rýmislausnir sem tengja saman list og hönnun. Það var einmitt til þess að dýpka kunnáttu sína og þekkingu sem hún fluttist til Lissabon í frekara nám og féll algjörlega fyrir borginni.   Umsjón: Tinna Proppé // Myndir: Aðsendar Hvenær og hvers vegna fluttir þú til borgarinnar? ...