Lúxus
Hús og híbýli
LÚXUS MEÐ LÁTLAUSU YFIRBRAGÐI
Umsjón/ Agnes Sólmundsdóttir og Kolfinna Von Arnardóttir Myndir/ Eva Schram og Sóllilja Tindsdóttir Það er ákveðin kyrrð sem tekur á móti manni í þessari fáguðu þakíbúð í Urriðaholti. Rýmið er opið og bjart, lofthæðin ríkuleg og útsýnið fær að njóta sín án þess að keppa við óþarfa skreytingar. Áferðarmikill steinn, hlýr viður og sérsmíðaðar innréttingar mynda fágaða umgjörð þar sem smáatriðin eru vandlega hugsuð en ekkert virðist kalla sérstaklega eftir athygli. Þannig vildi Ella Thor Þorsteinsdóttir innanhússarkitekt hafa það....