Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Missir

Ég er lítið fyrir að marinerast í einhverjum leiðindum

Það er virkilega gaman að spjalla við athafna- og ævintýramanneskjuna Berglindi Häsler. Hún hefur brasað margt og mikið í gegnum tíðina en síðustu ár hafa kraftar hennar að mestu farið í Havarí sem hún stofnaði upprunalega með Svavari Pétri sem eins og alþjóð veit lést fyrir aldurfram árið 2022. Berglind er ein af þessum manneskjum sem allt virðist leika í höndunum á og hún nær að galdra fram töfrandi aðstæður með hæfileikaríku fólki sem virðist á einhvern hátt vera fleira í kringum hana en mörg okkar hinna. Blaðamaður hitti Berglindi í nýju húsnæði Havarí í Faxafeniog fékk að forvitnast um hana og sögu Havarí.   Umsjón og texti: Tinna Proppé / Myndir: Eva Schram  Berglind er alin upp í vesturhluta borgarinnar og sleit þar barnsskónum. Það er greinilegt að þau karaktereinkenni sem prýða hana í dag, áræðni, jákvæðni og skapandi hugsun, hafa verið hluti af henni frá unga aldri. Það segir kannski mest um hana að í aðstæðum sem mörgum börnum þættu kvíðvænlegar sá hún tækifæri og var spennt að prófa nýja hluti.   „Ég ólst upp á Seltjarnarnesi til 12 ára aldurs. Þar var mjög gott að alast upp en ég man hvað mér fannst spennandi þegar mamma og pabbi sögðu mér að við værum að flytja í Skerjafjörð....

„Vildi óska þess að ég væri barnið í maganum á Britney Spears“

Tónlistarmaðurinn Álfgrímur óx úr grasi umkringdur tónlist og skapandi hugsuðum, en upplifði ungur djúpan...