Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

Nýbyggingar

HYGGE Í HÁVEGUM HAFT

Umsjón/ Agnes Sólmundsdóttir Myndir/ Eva Schram  Við rætur Öskjuhlíðar má nú finna eitt nýjasta og eftirsóttasta íbúðahverfi Reykjavíkur. Þar hafa hjónin Jakob Einar Jakobsson og Sólveig Margrét Karlsdóttir hreiðrað um sig í huggulegri íbúð í Smyrilshlíðinni, ásamt fjölskyldu. Skandinavísk hönnun, hlýlegt andrúmsloft og persónulegir munir setja svip sinn á heimili þeirra og þeim hefur sannarlega tekist að skapa sér rými þar sem fegurð og notagildi fara saman.  LANDSBYGGÐARFÓLK MEÐ...

Nýbyggingar með sjálfbærni að leiðarljósi

Emilía Borgþórsdóttir vill sjá byggingar sem þjóna fólki, virða umhverfið og standast tímans tönn  Umsjón/ Kolfinna Von Arnardóttir Myndir/ Sunna Gautadóttir og Íris Dögg Einarsdóttir  Emilía Borgþórsdóttir nálgast hönnun og sköpun frá óvenjulega mörgum sjónarhornum. Hún er menntuð í sjúkraþjálfun, iðnhönnun og umhverfis- og auðlindafræði og starfar sem verkefnastjóri sjálfbærni hjá Húsasmiðjunni. Að hennar mati þurfa góðar nýbyggingar ekki aðeins að vera fallegar heldureinnig heilsusamlegar, endingargóðar og lagaðar að fólkinu sem notar þær. Við ræddum við Emilíu um kolefnisspor bygginga, efnisval, skipulag nýrra hverfa og hvers vegna mikilvægustu ákvarðanirnar eru teknar áður en framkvæmdir hefjast.  Hönnun sem byrjar á fólkinu „Góð hönnun er sú sem endist og þjónar raunverulegum þörfum.“  Hvernig kviknaði áhugi þinn á hönnun? „Ég hef alltaf verið mjög næm á umhverfi mitt en raunverulegur áhugi kviknaði þegar ég var...