Rækta Microfarm
Rækta Microfarm
Umsjón/ Kolfinna Von Arnardóttir Myndir/ Frá framleiðendum Grænsprettur: Leynivopn sælkerans Grænsprettur eru gómsæt viðbót við alla rétti. Í dag teljast þær eitt helsta leynivopn sælkera um allan heim. Þær bæta bragð, áferð og útlitrétta og passa jafnt við matrétti og bakkelsi ásamt því að vera stútfullar af næringarefnum. Ítölsku hjónin Giacomo Montanelli og Serena Pedranastanda að baki örbýlinu Rækta Microfarm á Akureyri. Þar ráða ferskleiki, sjálfbærni og gæði för. Tilbúin uppskera er send í sinni ferskustu mynd, enní ræktunarbökkum, frá örbýli hjónanna á veitingastaði víðs vegar um landið. Þau hafa þjónustað Norður- og Austurland af mikilli tryggð undanfarinmisseri en hyggjast nú þjónusta höfuðborgarsvæðið í auknum mæli. Góð næring og gott bragð Grænsprettur, eða microgreens, eru ungar ætilegar plöntur sem eru uppskornar skömmu eftir spírun og oft flokkaðar sem sönn ofurfæða vegna ríksnæringarinnihalds. Á örbýlinu má finna yfir 50 gómsætar tegundir, þar á meðal kóríander, karsa, spergilkál, radísur, sinnep, súrur og ýmsar tegundirbasilíku. Hver tegund hefur sitt einstaka einkenni. Sumar þeirra eru mildar og ferskar í bragði, á meðan aðrar bæta við réttina skörpu, pipruðu eðasinnepskenndu kryddi. Það er því engan veginn tilviljun að sífellt fleiri matreiðslumenn nýta grænsprettur sem virkan þátt í matargerðinni fremur eneingöngu sem skraut á disknum. ...