rithöfundur
Góða bók er hægt að lesa hundrað milljón sinnum án þess að leiðast
Kamilla Einarsdóttir er ein af skemmtilegri manneskjum borgarinnar. Hún er rithöfundur, bókavörður og einlægur aðdáandi Hamraborgar í Kópavogi. Hún hefur getið sér gott orð fyrir skáldsögurnar Kópavogskróniku og Tilfinningar eru fyrir aumingja en sú fyrrnefnda var einnig sett upp sem leikrit í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Silju Hauksdóttur. Kamilla hefur einstakt lag á því að sjá heiminn frá fersku sjónarhorni og draga áhugaverða kima mannlífsins fram í dagsljósið. Umsjón: Tinna Proppé / Myndir: Í einkaeigu Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér núna? „Ég er alltaf með bunka af bókum því ég vil geta valið mér bók eftir því í hvernig skapi ég er án þess að þurfa að standa upp. Sumar bækur eru alltaf hjá mér, eins og Mannfækkun af hallærum eftir Hannes Finnsson, hún reddar mér alltaf þegar ég dett í sjálfsvorkunn. Núna er ég líka með ljóðabók...
Spennan og forvitnin hafa vegið þyngra en óttinn
Kvikmyndaframleiðandinn og nú rithöfundurinn Lilja Ósk Snorradóttir hefur staðið að mörgum af þeim helstu kvikmyndum sem hafa átt velgengni að fagna síðastliðin misseri. Í dag er hún eigandi framleiðslufyrirtækisins Pegasus ásamt eiginmanni sínum Ella Cassata. Hún hefur veriðákaflega framarlega í sínu starfi í mörg ár og ekkert benti til annars en að hún myndi halda áfram á þeirri braut. Hún lenti þó í slysi í matarboði hjá foreldrum sínum á páskadag 2021 þegar hún flækti fæturna í hundabúri og féll í gólfið og fékk slæmt höfuðhögg. Slysið kippti henni út úr lífinu eins og hún hafði ávallt þekkt það en beindi henni þó á nýjar brautir. Hún gefur nú út sína aðra bók á tveimur árum. Sú fyrri fjallar um reynslu hennar af því að ná bata eftir slysið en sú síðari er skáldsaga sem kemur út nú á sumarmánuðum. Við fengum að heyra af einstakri sýn Lilju á feril sinn og þærbreytingar sem hafa orðið á lífi hennar síðustu árin. Umsjón og texti: Tinna Proppé Myndir: Sunna Gautadóttir Förðun: Kalli MUA Lilja ólst upp í Kópavogi þar sem hún stundaði nám í Digranesskóla en hún stundaði einnig nám í Tónlistarskóla Kópavogs þar sem hún lærði á selló og píanó. Það er óhætt að segja að tónlistin hafi verið alltumlykjandi á heimilinu þar sem systir hennar lærði á þverflautu og bróðir hennar á gítar. ...