Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

road trip

Maður upplifir ekki eins mikið ef maður útilokar sig frá öðrum

Tvítug að aldri tók Erna Viggósdóttir ákvörðun sem fáir hafa tekið um ævina. Hún ákvað að leggja land undir fót og fara ein í Evrópureisu með vikustoppi í Marokkó. Með nesti og nýja skó leitaði hún ævintýrin uppi, kynntist heiminum og sjálfri sér í leiðinni. Við vorum svo heppin að fá að spyrja Ernu út í ferðalagið og fá hjá henni ráð fyrir þau sem stefna á álíka ferðalag eða láta sig dreyma um það.   Umsjón: Tinna Proppé / Myndir: Í einkaeigu  Hvað fékk þig til að ákveða að fara ein í heimsreisu?   „Ég var búin að sjá mikið á netinu um „solo travel“ og heillaðist af því. Ég er ein af þeim sem eiga ekki erfitt með að eyða tíma með sjálfum sér. Ég fer mikið ein í líkamsrækt, í sund, í verslunarleiðangur eða annað sem margir á mínum aldri treysta sér ekki í einir. Stundum er þroskandi að hafa engan nema sjálfan sig að stóla á. Þú lærir sjálfstraust, sjálfsöryggi og kynnist sjálfri þér betur. Þannig kviknaði sú hugmynd hjá mér.“  Var eitthvað ákveðið augnablik þar sem þú hugsaðir „nú geri ég þetta“?   „Ég var lengi búin að hugsa um það að fara út áður en það var staðfest að ég færi. Ég var búin að segja það upphátt við flest...