Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

skemmtilegt

Umvafðar blómum í Hlíðunum

Hvað er betra en að heimsækja fallega blómabúð í grónu hverfi? Fyrir tæpum sex árum opnuðu þær Kristín Inga Arnardóttir og Rósa Björg Óladóttir verslunina Blóm og fiðrildi í Suðurveri, hjarta Hlíðahverfisins. Sif Embla kom fljótt til starfa og hafa þær verið þrjár saman með búðina alla tíð síðan.    Umsjón: Steinunn Jónsdóttir Myndir: Sunna Gautadóttir  „Við Kristín og Rósa erum báðar aldar upp af miklum blómakonum svo það er ekki langt að sækja áhugann. Við höfum alla tíð verið mikið í kringum blóm og verið áhugasamar um að fegra umhverfið okkar með bæði pottablómum og afskornum blómum. Þegar við opnuðum búðina vorum við að fara út í djúpu laugina en fljótlega fengum við Sif Emblu til starfa. Sif var með fimm ára reynslu úr blómabúð svo að hún var dýrmætviðbót. Síðan við opnuðum höfum við sótt námskeið og lært ýmislegt af netinu en...