Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors

uppskrift

Íslenskar pönnukökur

u.þ.b. 30 stykki  50 g smjörlíki, brætt 1-2 tsk. vanilludropar 3 bollar hveiti 2 tsk. lyftiduft 3 msk. sykur 3 egg 1 l mjólk  Setjið þurrefnin í skál og hrærið saman í hrærivél. Setjið mjólkina út í hægt og rólega á meðan hrært er. Hrærið í smá tíma þangað til kekkirnir fara úr deiginu. Þegar deigið er farið að þynnast má setja eggin út í, eitt í einu, og hrærið aðeins á milli. Þá má bæta vanilludropunum og smjörlíkinu saman við deigið. Hitið pönnuna vel á háum hita og lækkið svo niður í meðalhita. Smyrjið pönnuna aðeins, þá er gott að setja smá smjör í eldhúsbréf og strjúka yfir. Pönnukökudeigið geymist vel inni í ísskáp, jafnlengi og mjólkin í deiginu.

Mjúkar salkringlur

8 stk.  800 g hveiti, auka til að sáldra yfir vinnuborð 1 msk. púðursykur 2 tsk. þurrger 100 ml mjólk 400 ml dökkur bjóru.þ.b. 2-3 msk. bragðlítil olía, til að smyrja...

Makona, þar sem Ísland og Nýja-Sjáland mætast

Umsjón/ Matthildur Hafliðadóttir Myndir/ Eva Schram  Veitingastaðurinn MAKONA opnaði síðastliðinn janúar við Borgartún 26 en þar hittum við nýsjálenska kokkinn Glenn Moyle og hans teymi sem saman matreiða dýrindis rétti. Glenn Moyle hefur í um þrjátíu ár starfað sem kokkur víða um heim. Hann ólst upp á Nýja-Sjálandi en árið 1997 flutti hann þaðan til Hollands til að stunda íþróttina vatnapóló um stund en eftir það flutti hann til Lundúna þar sem hann hóf sinn feril í matargerð. Hann hefur ferðast mikið á sínum ferli og starfað sem kokkur í löndum líkt og Englandi, Skotlandi, Danmörku, Noregi, Austurríki, Grikklandi, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Hollandi og nú á Íslandi. Á ferðalögum sínum upplifði hann ólíka menningarheima og matargerðarlist sem hefur mótað og auðgað hans heimssýn en líka bragðlauka. Hann nýtur samstarfsins við aðra kokka sem má finna í eldhúsinu því starfið innan þess getur verið einstaklega fjölþjóðlegt og gefandi.  „Núna hef ég búið jafn lengi á Nýja-Sjálandi og hér á Íslandi og langaði því einnig að tengja þessi lönd meira saman.“ ...

„Ég er ekki lengur hrædd við það sem koma skal“

María Krista Hreiðarsdóttir hefur alla tíð verið sinnar eigin gæfu smiður. Frumkvöðlaandann fékk hún í vöggugjöf og hefur hún nýtt sér hann óspart í gegnum árin. Hún hefur skapað sér nafn sem hönnuður, fyrirtækjaeigandi og áhrifavaldurá sviði heilsu og lífsstíls en er að eigin sögn ósköp venjuleg miðaldra stelpa. Hér rifjar hún upp æskuárin í Hafnarfirði, lífsstílsbreytinguna sem breytti lífi hennar og sáran missi sem kenndi henni að taka lífinu ekki sem sjálfsögðu.   Umsjón: Steinunn Jónsdóttir Myndir: Sunna Gautadóttir Förðun: Kalli MUA  „Ég fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði þann 31. desember 1973 og var líklega með þeim síðustu sem geta kallað sig fullgildan GAFLARA en það gildir aðeins um þá sem fæðast innan 220 póstnúmersins. Ég er afar stolt af því að vera Hafnfirðingur enda er Hafnarfjörður minn uppáhaldsstaður og ég vil hvergi annars staðar vera,“ segir María Krista þegar hún er spurð út í uppruna sinn.    Á æskuheimilinu var alltaf líf og fjör en hún er elst fjögurra systkina. „Við ólumst upp í sama húsinu alla okkar æsku og þar búa foreldrar okkar enn. Ég bjó að vísu eitt ár á Laugarbakka sem barn með mömmu og pabba, sem unnu þar í skólanum, en annars höfum við fjölskyldan lítið farið út fyrir bæjarmörkin.“   Foreldrar hennar,...

Gróa sælkeraverslun – nýr veitingastaður og verslun við Tryggvagötu

Umsjón/ Matthildur Hafliðadóttir Myndir/ Sunna Gautadóttir  Við Tryggvagötu 26 opnar á næstu vikum nýr veitingastaður sem ber nafnið Gróa sælkeraverslun. Þær Belinda Navi og Þorgerður Ólafsdóttir sameina krafta sína og...

Prímadonnur nenna ekki flóknum uppskriftum

Umsjón og myndir/ Snærós Sindradóttir Það er ómetanlegt að geta gengið að einföldum og...

Heimagerður kaffilíkjör úr fjórum innihaldsefnum

Mörg byrja daginn á því að hella sér upp á góðan kaffibolla en oftar...

Grilluð próteinpizza hápunktur vikunnar

Umsjón/ Birta Fönn K. Sveinsdóttir Myndir/ Alda Valentína Rós Helga Margrét starfar sem næringarþjálfari...

Mikilvægt að læra að hlusta á líkama sinn

Umsjón/ Birta Fönn K. Sveinsdóttir Myndir/ Alda Valentína Rós Elínu Jónsdóttur er margt til...

Skemmtileg saga í dag en ekki þá

Kristín Ösp Gústafsdóttir tók við rekstrinum á versluninni Allt í köku fyrir 13 árum...