Vigdís M. Jónsdóttir
Sláandi hvað umræða um einhverfu hjá konum er lítil
Vigdís M. Jónsdóttir sálfræðingur hefur síðustu misserin beint sjónum sínum í æ ríkari mæli að einhverfu hjá konum, einkennum hennar og vangreiningu. Hún hefur þar að auki staðið fyrir vitundarvakningu hjá almenningi um muninn á einhverfu hjá konum og körlum og hjálpað mörgum konum að átta sig á eigin stöðu þegar kemur að greiningu á einhverfu. Blaðamaður fékk að spyrja Vigdísi út í þetta mikilvæga málefni en hún segir að það sé sláandi hvað þekkingin á einhverfu hjá konum hafi verið lítil í gegnum tíðina. Umsjón og texti: Tinna Proppé / Myndir: Sunna Gautadóttir Við hittum á Vigdísi þegar hún er í óðaönn að pakka saman lífinu hér á Íslandi þar sem hún hyggst á flutninga til Miami en maðurinn hennar er að fara í nám þar ytra. Hún hyggst þó halda sínu góða starfi áfram og taka fjarviðtöl við sína skjólstæðinga á meðan á dvölinni vestra stendur....