Þóra og söguslóðir Blóðbergs
14. júlí 2022
Eftir Ritstjórn Vikunnar

Texti: Ragna Gestsdóttir Rithöfundurinn Þóra Karítas Árnadóttir leiðir göngu um Þingvelli fimmtudagskvöldið 21. júlí. Gangan er fyrir alla, ókeypis og hefst kl. 20 við gestastofuna á Haki. Þóra gaf í fyrra út sögulegu skáldsöguna Blóðberg. Í henni eru örlög Þórdísar Halldórsdóttur rakin.Þórdís var árið 1608 fundin sek um blóðskömm. Ævi Þórdísar endaði eins og 18 annarra kvenna sem var drekkt á Þingvöllum. Málaferlin og aftökuörnefnin á Þingvöllum eru til vitnis um myrka tíma í sögu staðar og þjóðar. Upplýsingar á Facebook: thingvellirnationalpark.
🔒
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn