Töfrandi sveppir eftir Studio Brynjar & Veronika
Umsjón/ Maríanna Björk ÁsmundsdóttirMyndir/ Frá framleiðendum Lista- og hönnunarstúdíóið Brynjar & Veronika héldu nýverið glæsilega sýningu sem bar heitið Mystic Garden en þar sýndu þau glerblásna sveppalampa í allri sinni litadýrð. Lamparnir voru hannaðir til þess að líkja eftir ásýnd regnboga og fást meðal annars á galeriekreo. com. Hvert stykki er handblásið af listamönnum í CIRVA-listamiðstöðinni í Marseille og lýsingin er framleidd af ítalska fyrirtækinu From Lighting. Brynjar Sigurðsson og Veronika Sedlmair eru hönnunardúó í Þýskalandi og vinna með mörkin á milli goðsagna og raunveruleikans með lifandi sögusögn í öllum verkum sem sýnd hafa verið víðs vegar um heiminn.
Áskrift að Birtíngi
Þessi grein er eingöngu fyrir áskrifendur. Fáðu aðgang að öllu efni Birtíngs, frá aðeins 1.890 kr. á mánuði.
Fyrstu 7 dagana er ekkert rukkað. Hægt er að segja upp hvenær sem er innan reynslutímans.
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn