Tónlist víkingaaldar í Eldborg
26. maí 2022
Eftir Ritstjórn Vikunnar

Texti: Ragna Gestsdóttir Wardruna er orðin gríðarþekkt í heiminum og vinnur út frá sögulegri tónlist víkingaaldar á tónleikum sem fara fram 26. maí í Eldborgarsal Hörpu. Hópurinn leikur á forn hljóðfæri og sækir yrkisefni í bókmenntaarf á borð við Eddukvæði. Hljómsveitin notast við mörg af elstu hljóðfærum sem finna má í norrænni menningu ásamt ljóðum og kveðskap sem hljómsveitin sameinar í nútímalegan hljóðheim. Hljómsveitin flytur kynngimagnaða tónlist og leikur meðal annars á geithorn og önnur forn hljóðfæri. Upplýsingar: tix.is.
🔒
Áskrift krafist
🎉 Prófaðu frítt í 7 daga
Fáðu ótakmarkaðan aðgang að öllum efni Birtíngs í 7 daga án greiðslu.
Prófa frítt núnaErtu þegar með aðgang?
Skráðu þig inn